Námsráðgjöf
Í Hagaskóla er starfandi námsráðgjafi sem nemendur geta leitað til með öll þau málefni sem liggja þeim á hjarta. Námsráðgjöfin er þjónusta fyrir nemendur skólans og fer fram í trúnaði.
Þú getur leitað til námsráðgjafans með málefni sem tengjast:
» náms- og starfsvali
» námstækni, vinnubrögðum, skipulagningu
» einbeitingu og námserfiðleikum
» prófkvíða og öðrum kvíða eða depurð
» þér líður illa í skólanum eða heima
» þú verður fyrir einelti eða ert einmana
» þú átt í erfiðleikum með samskipti við fjölskylduna, kennarana eða bekkjarfélagana
Nánari upplýsingar:
- Eva þorsteinsdóttir, námsráðgjafi - eva.thorsteinsdottir@rvkskolar.is
Iðjuþjálfi
Hlutverk iðjuþjálfa er að sinna fjölbreyttri þjónustu við nemendur bæði í einstaklingsmeðferð og hópastarfi. Iðjuþjálfi vinnur að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum sem stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Nánari upplýsingar:
- Sigríður Ásta Eyþórsdóttir, iðjuþjálfi - sigridur.asta.eythorsdottir@rvkskolar.is
Fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðingur
Í Hagaskóla er starfandi fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðingur sem býður upp á meðferðarvinnu með nemendum sem eiga við tilfinningalega og/eða félagslega erfiðleika að stríða. Boðið hefur verið upp á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 6-10 manna hópa sem hittist einu sinni í viku, 10 vikur í senn. Sigríður Birna fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðingur hefur einnig unnið með foreldrum og nemendum við að bæta samskipti sín á milli.
Í leiklistarmeðferð er tekist á við hugsanir og tilfinningar á annan hátt en í hefðbundinni viðtalsmeðferð en lögð er áhersla á að skapa gott traust við nemendur og auka vellíðan þeirra í skólanum og í félagahópnum.
Nemendur skólans og foreldrar þeirra geta óskað eftir viðtali hjá Sigríði Birnu sem fer fram í fullum trúnaði.
Nánari upplýsingar:
- Sigríður Birna Valsdóttir, fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðingur - Sigridur.Birna.Valsdottir@rvkskolar.is