Opið hús hjá framhaldsskólunum
Framhaldsskólarnir bjóða nemendum í 10. bekk og forráðamönnum þeirra upp á opið hús þar sem þeir kynna starfsemi sína og svara spurningum. Þar er hægt að skoða skólahúsnæðið, afla sér upplýsinga um námsframboð og inntökuskilyrði og sjá hvað félagslíf viðkomandi skóla hefur upp á að bjóða.
Opið hús verður í:
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ - 22. febrúar 2012 - 16:00 til 18:00
Verslunarskólinn - 23. febrúar 2012 - 17:00 til 19:00
Menntaskólinn við Sund - 6. mars 2012 - 16:30 til 18:00
Iðnskólinn í Hafnarfirði - 7. mars 2012 - 13:30 til 18:00
Kvennaskólinn í Reykjavík - 13. mars 2012 - 17:00 til 19:00
Borgarholtsskóli - 14. mars 2012 - 17:00 til 19:00
Menntaskólinn í Kópavogi - 14. mars 2012 - 17:00 til 19:00
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - 15. mars 2012 - 17:00 til 18:30
Fjölbrautaskólinn við Ármúla - 15. mars 2012 - 16:30 til 18:30
Menntaskólinn við Hamrahlíð - 15. mars 2012 - 17:00 til 19:00
Menntaskólinn í Reykjavík - 17. mars 2012 - 14:00 til 16:00
Tækniskólinn - 28. apríl 2012 - 13:00 til 16:00 | Uppskerudagur
Menntaskólinn í Reykjavík
Boðið er í heimsókn í MR á miðvikudögum kl.15:00. Þetta gildir um tímabilið frá 1. febrúar til 14. mars (báðir dagar meðtaldir), aðrar dagsetningar koma til greina ef óskað er. Náms- og starfsráðgjafi skólans kynnir nám og nemendur kynna félagslíf skólans.
Einnig er farið í gönguferð um húsnæðið. Heimsóknin tekur um það bil 45 mínútur.
Hægt er að taka á móti um það bil 60 manns í hvert skipti þannig að nauðsynlegt er að bóka heimsókn. Hafið samband við skrifstofu skólans í síma 5451900.
Beðið er eftir upplýsingum frá eftirfarandi framhaldsskólum:
- Borgarholtsskóli
- Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
- Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
- Menntaskólinn Hraðbraut
- Tækniskólinn











