Beint á leiðarkerfi vefsins

Hagaskóli

Mötuneyti

Skráningar í mataráskrift í grunnskólum Reykjavíkur eru gerðar í gegnum Rafræna Reykjavík

Til að geta skráð nemendur í mataráskrift þarf foreldri/forráðamaður að skrá sig inn í Rafræna Reykjavík með kennitölu og lykilorði.

Þeir sem ekki hafa lykilorð þurfa að stofna aðgang og geta í kjölfarið fengið lykilorðið sent í sinn heimabanka eða  í almennum pósti. 

Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu skulu hafa samband við skrifstofu skólans og fylla þar út samning um mataráskrift.

Mánaðarlegt gjald fyrir hádegismat í skólamötuneytum borgarinnar er samkvæmt ákvörðun borgarráðs hverju sinni og er innheimt  níu sinnum á skólaári, frá september til maíloka, í jöfnum greiðslum.  Gjaldið er nú 6.200 kr. á mánuði.  Foreldrar geta valið að greiða með greiðsluseðli eða kreditkorti.

Vakin er athygli á því að innheimt er eftir á, t.d. er reikningur vegna áskriftar í september gefin út 20. þess mánaðar með gjalddaga  þann 1. október  og eindaga  1. nóvember.

Ef mataráskrift er hætt þarf að segja henni upp í Rafrænni Reykjavík og tekur hún þá gildi frá og með næstu mánaðamótum. Að öðrum kosti er áfram gert ráð fyrir hádegisverði  fyrir nemandann og greiðslu.

Matseðlar eru gefnir út í hverjum skóla og vistaðir á heimasíðu hans.

Þjónustuver Reykjavíkurborgar veitir alla frekari aðstoð við notkun Rafrænnar Reykjavíkur í síma 411 1111

Matseðill


Rétt er að benda á að hægt er að leita fjárhagsaðstoðar til Vesturgarðs, þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, til að greiða mötuneytisáskrift barna í grunnskólum.

Nánar á vef Reykjavíkurborgar.


Viðburðir

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóðin þín:

Nemendaþjónusta » Mötuneyti