Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Foreldrafréttir

5.2.2012

Félagsvist foreldrafélags Hagaskóla

Miðvikudagskvöldið 8. febrúar kl. 19:30, efnir Foreldrafélag Hagaskóla til félagsvistar á sal skólans. Spilað verður um hinn eftirsótta titil Vistmaður Hagaskóla í fjórða sinn. Nemendur eru hvattir til að taka foreldra sína með á spilakvöldið og foreldrar eru hvattir til að hvetja börn sín til þátttöku.

Fátt er betra til að hrista saman kynslóðirnar en gott spilakvöld. Mætum öll í spennandi félagsvist í Hagaskóla miðvikudagskvöldið 8. febrúar kl. 19.30! Heppilegt er að þeir sem mæta taki með sér spilastokk ef kostur er.

Félagsvist - reglur


Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar